Aðalvalmynd

Auglýsing

Flokkar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Vigtun 5

08. apríl 2008 klukkan 10:27
Já, ef ég gleymdi að láta vita þá biðst ég afsökunar...framvegis eru vigtanir á þriðjudögum :)

Fóru 1,2 kg þessa viku. Var sæmilega dugleg að passa mig að borða reglulega (sem er mitt stærsta vandamál), en léleg að fara eftir danska...setti samt ekki hvað sem er ofan í mig!

Á svakalega erfitt með að borða morgunmatinn, er bara ekki komin í gang! Svo byrjar maður að vinna og ætlar að klára þetta og hitt áður en maður borðar morgunmatinn og þá er bara komið hádegi...

Eins og hraðinn er mikill á mínu lífi þessa dagana þá er ég að spá í að jafnvel prófa Herbalife. Aldrei prófað það hingað til...en verið að redda mér með EAS drykkjum svona inn á milli...og finnst það fínt. Hef einfaldlega ekki tíma til að elda þetta allt, eins og staðan er núna.

En eins og ég segi, er bara enn að hugsa málið.

Vigtun 4

06. febrúar 2008 klukkan 11:50
Jæja, niður um 100g :) Ég er bara mjög sátt. Var búin að fylgjast aðeins með vigtinni þessa viku og fór alveg upp um 1,3kg á tímabili...en ég hafði það og kom meira að segja út í mínus :)

Greinilegt að áfengi tekur sinn toll, því að öðru leyti var ég hrein og bein í mataræðinu.

Ég fór svo reyndar að telja aðeins. Ég held ég hafi verið óraunhæf þegar ég setti mér markmiðið - burt séð frá áfenginu - gaf mér bara 4 vikur í þessi 5 kg! Sem var slys bara - ætlaði mér alltaf 5-6 vikur fyrir hver 5 kg!

Jæja, nóg í bili...
Kv. EllyMae

Vigtun 3 - Dagur 22

30. janúar 2008 klukkan 15:41

Haldið þið að það hafi ekki bara farið 1.8 þessa vikuna :) Ótrúlega frábært bara :) Greinilegt að það skilar sér að borða mikinn fisk og lítið af osti :) A.m.k fyrir mig.

Ég er náttúrulega bara í skýjunum yfir þessu og er verulega farin að draga í land með það hvort ég eigi að fá mér í glas í staffapartýinu á föstudag – tími því eiginlega ekki...Hugsa að ég melti það í dag og á morgun.

Ætla að skontast heim snöggvast. Læt kannski heyra eitthvað meira í mér í kvöld :)

Vigtun 2

23. janúar 2008 klukkan 09:28
Jæja, vigtin í morgun sagði -0,6 og ég tek því fagnandi en minni sjálfa mig líka á þetta stóra bit sem var í mér í gær. Ferlegt að gefa sjálfum sér svona færi á að berja sig niður og vera óánægður...henti öllu sem ekki má borða!

Þarf líka að vera duglegri við matardagbók. Hún fór eitthvað fyrir bý síðustu viku og þá einmitt er meira mál að finna sér hvað maður má fá sér sem er gott. Já, eða það er auðveldara fyrir mann að henda poppinu í örbylgjuna ;-) Ekkert meira þannig.

Það eru farin 2,8 í heildina, sem þýðir að ég hef 2 vikur núna til að losna við 2,2 kg og ná 5 kg markmiðinu. ÞVÍ VERÐUR NÁÐ, SAMA HVAÐ ÞAÐ KOSTAR! Ég veit ég get þetta - þarf bara að minna sjálfa mig á það stundum.

Jæja, 3ja daga námskeið framundan í vinnunni. Hugmyndafræði TEEACH - skipulögð kennsla og vinnubrögð. Afskaplega spennandi dagar framundan og fullt af nýrri þekkingu :)

Heyrumst
Kv. EllyMae sem ætlar ekki að stíga nein hliðarspor þessa vikuna!

Vigtun 1 - Dagur 8

16. janúar 2008 klukkan 12:34

Vei! 2,2 kg farin í morgun og ég er auðvitað ótrúlega ánægð með það Hlæjandi

Ég er eitthvað farin að hressast, matarlystin amk að koma til baka en er ennþá með mikla beinverki og höfuðverk! Þakka bara fyrir að matarlystin sé komin, þá get ég haldið áfram að fylgja þessu - manni líður bara svo mikið betur.

Skondið, það er ábyggilega ár eða meira síðan ég keypti mér bókina "Megrun með Dr.Phil". Lengi vel gat ég auðvitað ekki byrjað í megrun af því ég átti eftir að lesa bókina - þó ég vissi að ég ætlaði að fara eftir danska en ekki bókinni hvað varðar mataræði. Þetta var auðvitað fín afsökun til síns brúks ef maður ætlaði að stinga höfðinu í sandinn...eins og ég klárlega ætlaði mér og gerði svoooo vel Saklaus

Ég byrjaði að lesa hana í gær. Já og meira en að lesa, ég fór að pæla í þessum hlutum sem hann talar um og fyllti samviskulega út í þar sem það átti við. Ég get ekki sagt annað en að ég mæli með þessari bók - er reyndar bara komin að 3ja kafla. Hún er fljótlesin og skrifuð þannig að maður sér Dr.Phil alveg fyrir sér lesa yfir manni. Hann lætur mann setja sér markmið (það er reyndar eitthvað sem ég nota mikið með fólki í mínu starfi og mér finnst hann gera þetta óþarflega flókið) og fær mann bara til að hugsa.


Jæja, nágrannar eru að byrja Ullandi set matseðil og fleira í kvöld...
Kv. EllyMae

Skammtímamarkmið 1

31. desember 2009 ætla ég að vera komin í 105kg



Langtímamarkmið

Einhvern tímann ætla ég að verða komin í 78kg


Innskráningar kubbur