Aðalvalmynd

Auglýsing

Flokkar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Dagur 86

03. apríl 2008 klukkan 11:03
Ég verð að viðurkenna að það eru einhverjir byrjunar örðugleikar hjá mér. Gengur vel þar til seinnipart dags, þá er löngunin í snakk alveg að drepa mig! Er svona að trappa mig niður í þessu samt og það gengur ágætlega.

Finn strax hvað mér líður mikið betur! Orkumeiri og jákvæðari!

Reyndar getur vel verið að ég sé svona orkumikil og jákvæð af því ég er á yfirsnúniningi þessa dagana! Við vorum nefnilega að kaupa okkur hús hér í bæ og kláruðum að ganga frá pappírunum í gær :) Fengum svo óvænt að vita að líklega fáum við afhent mun fyrr en stóð til. Áttum að fá 1. júní, en fáum sennilega núna í lok apríl! Geggjað :)

Já, þetta er oft svona fyrst, bara um að gera að éta eitthvað hollt, sellerí, paprika og gulrætur eru t.d. góðar með salsasósu og sýrðum rjóma. :)
#1
03. apríl 2008 klukkan 14:53
Þegar ég var að byrja og ná úr mér þessari sykur- og nartþörf seinni partinn fannst mér rosalega gott að fá mér ávöxt með vanillujógúrt útá og jafnvel smá kanil.

Til hamingju með húsið og gangi þér vel :)
#2
03. apríl 2008 klukkan 17:25

Skrifa athugasemd

Skammtímamarkmið 1

31. desember 2009 ætla ég að vera komin í 105kg



Langtímamarkmið

Einhvern tímann ætla ég að verða komin í 78kg


Innskráningar kubbur