Ašalvalmynd

Auglżsing

Flokkar

Teljari

  • Heimsóknir ķ dag: ...
  • Žennan mįnuš: ...
  • Frį upphafi: ...

Nżtt start!

16. nóvember 2009 klukkan 12:13
Jæja, hef ákveðið að byrja að blogga aftur.

Er búin að vera að vinna í rólegheitunum í mínum málum, engar öfgar, enda byrjaði ég aftur þegar ég varð ófrísk í sept. 2008. Núna, 4 mánuðum eftir að ég átti, þá er ég 8 kg léttari en áður en ég varð ófrísk og er bara mjög ánægð með þann árangur.

Hinsvegar hefur fæðingarorlofið einhvernveginn ýtt undir að maður gleymir að borða...ótrúlegt hvað ég á auvðelt með það...enda kannski nóg annað að brasa :)

Ég hef þessvegna sett mér það sem markmið fram að jólum að ná að setja inn hreyfingu 3x í viku - göngutúra eða annað, og að borða reglulega. Ég stefni á að gera þetta bara í rólegheitunum og verða 105kg (er 107 núna) á áramótunum.

Upp, upp, upp į fjall...

18. įgśst 2008 klukkan 07:07
Upp um 800gr þessa viku! Ekki skrýtið kannski þegar öll þessi hreyfing bætist inn. Líkamsrækt 5x í vikunni og hjólað í vinnuna alla dagana. Frekar foj samt...sjáum hvað gerist næst...

11. įgśst - vigtun og mįlband

11. įgśst 2008 klukkan 18:11
Sentimetramæling í morgun. Síðan 23. júní voru farnir samtals 11.8 cm :) Næsta mæling er 8. sept :)

Síðan á síðasta mánudag voru farin 300g. Ég er alveg ánægð með það bara - miðar á rétta leið :) Bara 0.5kg eftir af fyrsta skammtímamarkmiði ;)

Hreyfing í dag: -516 kkal
Líkamsrækt í 30 mín: -416 kkal
Hjólað í vinnuna 2x5 mín: -111 kkal
(áætlað skv http://www.changingshape.com/resources/calculators/caloriesburnedcalculator.asp)

Mataræði í dag: 1441 kkal


Nákvæmari útlistingar skrái ég allt í dagbók og nenni ekki að vera að pikka það hingað inn :)

Bśin ķ "sumarfrķi" :)

10. įgśst 2008 klukkan 19:54
Ég er mætt aftur í bloggheima. Get státað mig af því að hafa haldið mér nokkurn veginn við, bætti á mig 100g síðan síðast. Ekkert stórmál með það. Reyndar fór ég alveg upp í 114,2 en er búin að ná mér niður aftur.

Er ekki að fylgja DDV í grundvallaratriðum en nýti mér auðvitað það sem ég lærði af því :)

Er að telja ofan í mig kaloríurnar, miða við að borða 1200-1500 kkal á dag og hreyfa mig a.m.k 3 í viku. Auk þess sem ég hjóla eða labba í vinnuna :) Er reyndar bara að setja inn hreyfinguna núna :) Var að enda við að gera 50 mínútna fitubrennsluspólu :) Tæknin kemur sér vel þegar maður býr á litlum stað :)

Fyrsti dagurinn í nýrri vinnu á morgun. Hin vinnan var bara of mikið álag og of mikil binding svo ég sagði upp. Búin að vera í u.þ.b 4 vikna sumarfríi og njóta lífsins :)

Ætla að taka á ykkur púlsinn snöggvast :)

Vigtun 5

08. aprķl 2008 klukkan 10:27
Já, ef ég gleymdi að láta vita þá biðst ég afsökunar...framvegis eru vigtanir á þriðjudögum :)

Fóru 1,2 kg þessa viku. Var sæmilega dugleg að passa mig að borða reglulega (sem er mitt stærsta vandamál), en léleg að fara eftir danska...setti samt ekki hvað sem er ofan í mig!

Á svakalega erfitt með að borða morgunmatinn, er bara ekki komin í gang! Svo byrjar maður að vinna og ætlar að klára þetta og hitt áður en maður borðar morgunmatinn og þá er bara komið hádegi...

Eins og hraðinn er mikill á mínu lífi þessa dagana þá er ég að spá í að jafnvel prófa Herbalife. Aldrei prófað það hingað til...en verið að redda mér með EAS drykkjum svona inn á milli...og finnst það fínt. Hef einfaldlega ekki tíma til að elda þetta allt, eins og staðan er núna.

En eins og ég segi, er bara enn að hugsa málið.

Dagur 86

03. aprķl 2008 klukkan 11:03
Ég verð að viðurkenna að það eru einhverjir byrjunar örðugleikar hjá mér. Gengur vel þar til seinnipart dags, þá er löngunin í snakk alveg að drepa mig! Er svona að trappa mig niður í þessu samt og það gengur ágætlega.

Finn strax hvað mér líður mikið betur! Orkumeiri og jákvæðari!

Reyndar getur vel verið að ég sé svona orkumikil og jákvæð af því ég er á yfirsnúniningi þessa dagana! Við vorum nefnilega að kaupa okkur hús hér í bæ og kláruðum að ganga frá pappírunum í gær :) Fengum svo óvænt að vita að líklega fáum við afhent mun fyrr en stóð til. Áttum að fá 1. júní, en fáum sennilega núna í lok apríl! Geggjað :)

Komin aftur

01. aprķl 2008 klukkan 08:02
Jæja...hehemm... ;)

Allavega, komin aftur. Það er það eina sem skiptir máli :)

Farin upp um u.þ.b 1,5 kíló, sem er bara fagnaðarefni miðað við allt sem á hefur gengið :)

Fjarnámið í DDV búið og ég ætla ekki að kaupa annað. Fannst ég ekki fá nóg út úr þessu. Kannski var ég bara ekki að nýta það út í ystu æsar.

Hinsvegar erum við nokkrar í bænum sem stofnuðum heilsuklúbb saman og ætlum að hittast alltaf á þriðjudögum. Leggst vel í mig.

Var að hugsa að byrja bara að telja allt upp á nýtt, en það er betra að halda áfram þar sem frá var hrofið. Það geta alltaf komið smá "tafir" og þetta var ein af þeim :) Ætla að klára þessi fyrstu 5 kg fyrir 15. apríl og halda svo ótrauð áfram. Þá hef ég 2 vikur til að taka 1.9kg og það er vel raunhæft. Hugsa svo að ég gefi mér 7 vikur í hver 5 kg.

Læt heyra í mér við fyrsta tækifæri :)

Oooog....þetta er ekki aprílgabb :)

Vigtun 4

06. febrśar 2008 klukkan 11:50
Jæja, niður um 100g :) Ég er bara mjög sátt. Var búin að fylgjast aðeins með vigtinni þessa viku og fór alveg upp um 1,3kg á tímabili...en ég hafði það og kom meira að segja út í mínus :)

Greinilegt að áfengi tekur sinn toll, því að öðru leyti var ég hrein og bein í mataræðinu.

Ég fór svo reyndar að telja aðeins. Ég held ég hafi verið óraunhæf þegar ég setti mér markmiðið - burt séð frá áfenginu - gaf mér bara 4 vikur í þessi 5 kg! Sem var slys bara - ætlaði mér alltaf 5-6 vikur fyrir hver 5 kg!

Jæja, nóg í bili...
Kv. EllyMae

Dagur 28

05. febrśar 2008 klukkan 21:28
Allt á réttu róli hér :)
Verið góð vika matarlega séð - fyrir utan áfengið á föstudagskvöldið :) Held ég eigi eftir að fara eitthvað aðeins upp núna :) "Vot ðe hekk! Æ hed só mutsh fönn enívei!"

Gef mér amk skilafrest á 5kg markmiðið um eina viku - og ekki deginum meir en það!

Leyfi ykkur að frétta af mér á morgun...
Kv. EllyMae

Sśkkulaši eggnogg

02. febrśar 2008 klukkan 16:47
3 egg
2 tsk sætuefni
Þeytt með töfrasprota þar til létt og ljóst

1 tsk kakó
2 tsk heitt vatn
Hrært saman þar til kakóið leysist upp og sett svo út í eggjablönduna.

500g undanrenna
Hrært eða hrisst vel :)

Má bragðbæta með balí dropum eða bara hverju sem hugurinn girnist :)

Skammtķmamarkmiš 1

31. desember 2009 ętla ég aš vera komin ķ 105kg



Langtķmamarkmiš

Einhvern tķmann ętla ég aš verša komin ķ 78kg


Innskrįningar kubbur